Gervigreind
Gervigreindarforrit eins og Claude og ChatGPT geta tengst Nola. Þá getur gervigreindin leitað í vöruúrvalinu okkar, sagt þér verð og athugað hvort litur eða stærð sé til á lager, beint í spjallinu.
Engin innskráning er nauðsynleg. Tengingin les aðeins upplýsingar um vörurnar okkar: hún getur ekki keypt neitt, sett vörur í körfu eða séð neitt um þig. Þegar þú finnur vöru sem þér líst á færðu hlekk á hana hér á nola.is.
Slóðin
https://nola.is/mcp
Claude
Á claude.ai eða í Claude-forritinu fyrir tölvu:
  1. Farðu í Customize og svo Connectors.
  2. Smelltu á + Add og veldu Add custom connector.
  3. Skrifaðu Nola sem nafn og https://nola.is/mcp sem slóð, og smelltu á Continue.
  4. Undir Authentication skaltu velja No sign in og smella svo á Add.
  5. Í nýju spjalli: smelltu á + neðst til vinstri, veldu Connectors og kveiktu á Nola.
Þetta virkar í öllum áskriftum, líka þeirri ókeypis, sem leyfir eina sérsniðna tengingu. Þegar tengingin er komin inn virkar hún líka í Claude-símaforritinu. Í Team- og Enterprise-áskriftum þarf eigandi aðgangsins (Owner) að bæta tengingunni við fyrst.
ChatGPT
Í vafra á chatgpt.com:
  1. Farðu á chatgpt.com/plugins.
  2. Smelltu á + og veldu Add custom MCP server.
  3. Skrifaðu Nola sem nafn og settu https://nola.is/mcp undir Connection sem Server URL.
  4. Veldu No authentication sem auðkenningu.
  5. Lestu viðvörunina, veldu I understand and want to continue og svo Create as a plugin.
  6. Settu viðbótina upp og skrifaðu @Nola í spjallinu til að nota hana.
Í vinnuaðgöngum (Business, Enterprise og Edu) getur kerfisstjóri þurft að leyfa sérsniðna MCP-þjóna.
Prófaðu að spyrja
„Er Brow Wiz frá Anastasia Beverly Hills til í Ash Brown?“
„Finndu vegan C-vítamín serum undir 8.000 kr.“
„Hvað kostar Super Serum Skin Tint og hvaða litir eru til?“
„Hvaða vörumerki í húðumhirðu eruð þið með?“
Fyrir forritara
Nola rekur MCP-þjón (Model Context Protocol) með Streamable HTTP og án auðkenningar. Hann styður MCP-útgáfur 2025-03-26 til 2026-07-28 og býður upp á tólin search_products, get_product og list_brands_and_categories.
Claude Code
claude mcp add --transport http nola https://nola.is/mcp
Cursor (~/.cursor/mcp.json)
{
  "mcpServers": {
    "nola": {
      "url": "https://nola.is/mcp"
    }
  }
}
VS Code (.vscode/mcp.json)
{
  "servers": {
    "nola": {
      "type": "http",
      "url": "https://nola.is/mcp"
    }
  }
}
Sími
537-1877
Tölvupóstur
Heimilisfang
Ármúli 38
Komdu í Nola klúbbinn
Opnunartími
Þriðjudaga–föstudaga: 11–17
Laugardaga: 11–16
🍪
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun, til að geta notað samfélagsmiðlalausnir og til að bæta þjónustuna okkar.
Hafna
Samþykkja