Vörumerki
Vöruflokkar
Undirflokkar
Skilmálar
Nola
Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Réttur er áskilinn til að staðfesta pantanir símleiðis í undantekningartilfellum. Hægt er að velja að sækja pöntun eða fá sent. Allar sendar pantanir fara með Póstinum & Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Nola ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Nola til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Einnig er hægt að sækja pantanir til okkar í verslun okkar í Ármúla 38. Opnunartími er mánudaga-föstudaga 10-17, laugardaga 11-17, lokað á sunnudögum.
Afhendingartími
Afhendingartími innanlands er að jafnaði samdægurs til 1-2 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu. Einnig er hægt að sækja pöntunina í verslun okkar á eftirfarandi tímum: mánudaga-föstudaga 10-17, laugardaga 11-17. Lokað á sunnudögum.
SENDINGARSKOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Vefverslun okkar er beintengd við póststoð Póstsins & Dropp og reiknast því sendingarkostnaður miðað við verðskrá þeirra. Enginn sendingarkostnaður er fyrir pantanir sem fara yfir 20.000 krónur. Nola sendir um allt land.
Verð
24% VSK er innifalinn í verði vörunnar og reikningar eru gefnir út með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Nola sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Vörur
Ef ljósmyndir og eða litir eru óskýrir á vefsíðu, vinsamlegast sendið þá beiðni um frekari lýsingu á vöru á netfangið [email protected]
MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ekki er hægt að skila eða skipta vöru án kvittunar. Gefin er inneignarnóta ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við okkur í síma: 537-1877 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] ef spurningar vakna. Ekki er hægt að skila eða skipta vörum sem ekki er hægt að sanna að hafi verið opnaðar, td gloss, ilmir, maskarar og naglalökk.
Greiðslur
Við bjóðum upp á nokkra greiðslumöguleika: Greiðslukort, Aur og Netgíró. Þú getur greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Teya. Netgíró bíður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Þú þarft að vera með aðgang hjá Netgíró til þess að nýta þér þjónustuna, fyrir þá sem hafa hann ekki er hægt að skrá sig hérna. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að skrá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur stofnast á viðskiptavin í heimabanka sem greiða þarf innan 14 daga, vaxtalaust. Einnig er hægt að velja að greiða með raðgreiðslum og það er mögulegt á að dreifa því á 2-12 mánuði. Aur bíður uppá einfaldar greiðslur þar sem greitt er með því að gefa upp símanúmer.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Sími
537-1877
Tölvupóstur
Heimilisfang
Ármúli 38
Komdu í Nola klúbbinn
🍪
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun, til að geta notað samfélagsmiðlalausnir og til að bæta þjónustuna okkar.
Hafna
Samþykkja