Vörumerki
Vöruflokkar
Húðtýpur
Undirflokkar
FRENCH COWBOY
MEZCAL CHOCOLAT
19.990 kr.
Lýsing

Mezcal Chocolat

Skot af mezcal mætir djúpu kakói í ilmi sem er heitur, seiðandi og ógleymanlegur.

Það hitnar í eldhúsinu þegar franski matreiðslumeistarinn Mathis Molinié er við störf. Logar, krydd og kraftur – þessi sama orka endurspeglast í Mezcal Chocolat, þar sem reykkennt mezcal mætir ríkulegu kakói.

Mathis þekkir mikilvægi góðra bragðsamsetninga og í þessum ilmi teflir hann andstæðum saman af dirfsku: reyktu og sætu, krydduðu og kremkenndu, hráu og fáguðu. Útkoman er djúpur og seiðandi ilmur sem dregur þig nær, eykur hitann og skilur eftir sig sterkan svip.

Mezcal Chocolat byggir á óvenjulegum og vandlega völdum hráefnum. Ilmurinn opnast með glitrandi lime-olíu sem fær aukinn reykkennda dýpt frá Olibanum frá Sómalíu. Til að ýta enn frekar undir karakterinn er notað afar sjaldgæft romm-extract, hráefni sem er jafn verðmætt og sum af fínustu Iris-hráefnum ilmgerðarlistarinnar.

Í stað hefðbundins tilbúins kakó-accords er hér notað Cacao Absolute – eitt verðmætasta form kakós – og í óvenju miklu magni. Djúpir og kremkenndir kakótónarnir renna saman við mjúkan viðargrunn úr Virginia Cedarwood, sem gefur frá sér hlýjan, reyktan og kremkenndan blæ, ásamt Cypriol Oil frá Indlandi, sem bætir við dökkum, jarðbundnum og dularfullum undirtóni.

Ilmurinn er 32% koncentreraður og látinn þroskast í fjórar vikur til að tryggja að hráefnin nái að blandast og jafnvægi skapist. Niðurstaðan er djúpur, fágaður og langvarandi ilmur með mikilli nærveru.


Um Mathis Molinié

Mathis Molinié er yfir­matreiðslumeistari á Restaurant Philippe í Rouen, þar sem hann starfar við hlið föður síns og endurhugsar fjölskylduveitingastaðinn fyrir nýja kynslóð.

Hann tilheyrir nýrri kynslóð matreiðslumeistara sem líta á eldhúsið sem einn vettvang af mörgum. Hefðin er honum mikilvæg, en jafnframt sækir hann innblástur í tísku, menningu og stafrænan heim.

Áreiðanleiki er hans aðalsmerki – hvort sem um er að ræða matargerðina, persónulegan stíl eða nærveru hans á samfélagsmiðlum, þar sem hundruð þúsunda fylgjast með honum.

Ilmtónar:

  • Chili-pipar

  • Saltað lime

  • Ávaxtaríkt mezcal

  • Kakó absolute

  • Reykt vanilla

  • Kremkennd viðartónar

    Gott að vita:

  • Cruelty Free

  • Vegan

  • Framleitt í Frakklandi

  • 100 ml

Innihaldsefni

Alcohol Denat., Parfum/Fragrance, Tetramethyl Acetyloctahydronaphthalenes, Citrus Aurantium Bergamia (Bergamot) Peel Oil, Limonene, Aqua/Water/Eau, Coumarin, Pinene, Linalyl Acetate, Linalool, Vanillin, Citral, Beta-Caryophyllene, Juniperus Virginiana Oil, Alpha-Isomethyl Ionone, Terpinolene, Geranyl Acetate, Terpineol, Alpha-Terpinene, Benzyl Benzoate, Benzyl Alcohol, Geraniol, Carvone

Sími
537-1877
Tölvupóstur
Heimilisfang
Ármúli 38
Komdu í Nola klúbbinn
Opnunartími
Þriðjudag - föstudags: 11-17
Laugardaga: 11-16
🍪
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun, til að geta notað samfélagsmiðlalausnir og til að bæta þjónustuna okkar.
Hafna
Samþykkja