Vörumerki
Vöruflokkar
Undirflokkar
Allies of Skin
Molecular Silk Amino Hydrating Cleanser DELUXE
3.990 kr.
Lýsing

Rakagefandi Andlitshreinsir.

Allies of Skin Silk Amino Hydrating Cleanser

Vörulýsing:

Andlitshreinsir sem inniheldur silki-amínósýrur en þær eru öflug andoxunarefni sem veita húðinni snefilefni og næringu. Þær draga til sín vatn og auka rakaísog húðarinnar svo húðfrumurnar fá aukinn raka og endurnæringu. Formúlan inniheldur einnig moringa- og safflúrolíur sem brjóta niður óhreinindi á sama tima og þær næra húðina og auka viðgerðarhæfni hennar. C-vítamín hjálpar til við að lífga upp á húðina á meðan lesitínfosfórlípíð myndar hlífðarfilmu á yfirborði hennar til að innsigla nauðsynlegan raka og halda húðinni þannig heilbrigðri og mjúkri. Við daglega notkun verður húðin silkimjúk með betrumbættri áferð og bjartari ásýnd. 25ml

Notkun:

Fyrir allar húðgerðir, pH: 5,1 – 6,1
Sérstaklega hentug fyrir þau sem vilja rakagefandi hreinsilausn sem lýsir og frískar húðina. Notist daglega, kvölds og morgna.

Magn á stærð við smápening
Berðu fyrst á þurra húð og nuddaðu varlega. Bættu síðan við vatni og nuddaðu aftur til að leysa upp dagleg óhreinindi, mengun, húðvörn SPF og förðun

Gott að vita:

Cruelty Free

Vegan

Nærandi og rakagefandi andlitshreinsir

Fjarlægir farða, sólarvörn og önnur óhreinindi

Inniheldur m.a. silki-amínósýrur sem auka rakastig húðarinnar og sefa hana

Lífrænar moringa- og safflúrolíur næra og styrkja ysta lag húðarinnar

Andoxunarefni veita húðbætandi áhrif

Gerir húðina bjartari ásýndar

Án sílikonefna, súlfata, alkóhóls, ilmkjarnaolía og tilbúinna litar- og ilmefna

25 ml

Innihaldsefni

Aqua (Water), Polyacrylate-1 Crosspolymer, Sodium C14-16 Olefin Sulfonate, Glycerin, Cocamidopropyl Hydroxysultaine, Sodium Cocoamphoacetate, Carthamus Tinctorius (Safflower) Seed Oil (Organic), Propanediol, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil (Organic), Leuconostoc/Radish Root Ferment Filtrate, Lactic Acid (L), Hydrolyzed Jojoba Esters, Moringa Oleifera Seed Oil (Organic), 3-O-Ethyl Ascorbic Acid, Cocodimonium Hydroxypropyl Silk Amino Acids, Hydrolyzed Silk, Camellia Sinensis (White Tea) Leaf Extract, Camellia Oleifera (Green Tea) Leaf Extract, Sodium Hyaluronate (L), Lecithin, Astaxanthin, Xanthan Gum, Citric Acid, Lauryl Glucoside, Sodium Cocoyl Glutamate, Sodium Lauryl Glucose Carboxylate, Caprylyl Glycol, O-cymen-5-OL, Polysorbate 20, Tetrasodium EDTA, Phenethyl Alcohol, Potassium Sorbate

Sími
537-1877
Tölvupóstur
Heimilisfang
Ármúli 38
Komdu í Nola klúbbinn
🍪
Við notum vafrakökur til að safna og greina upplýsingar um notkun, til að geta notað samfélagsmiðlalausnir og til að bæta þjónustuna okkar.
Hafna
Samþykkja